Tuesday, December 06, 2005

Veturinn

Já vildi bara láta ykkur vita að við erum ekki dauðir ennþá. Engin veið hefur verið síðan í okt en þá fórum við í Skorradal en lítil veið var. Farið var svona aðallega til að viðra okkur og græjurnar. Mjög kalt var og skyggði fljótt en þetta var samt gaman.
Læt vita ef eitthvað verður farið í vetur.
Over and out.
Blind Fisher

Thursday, August 18, 2005

Lýsuvötn,júlí 05



Hérna eru nokkrar myndir af þeim félögum Gilli,Barði,Gauta en þarna eru þeir félagarnir í Lýsunni rétt eftir stórstreymi í júlí sl. og var aflinn fimm laxar sem voru svona á bilinu fimm pund upp í stórlaxa en sögur herma að Gilli hafi veitt þann stærsta en Gauti flesta,en Barði fékk fjörugasta fiskinn.Hér er það ekki magnið sem gildir heldur stærðin og lífið í fisknum.
Blindi ritarinn.

Sunday, August 07, 2005

ný græja

Jæja,fékk veður af því að félagarnir hafi farið og keypt fiskleitartæki/dýptarmæli á bátinn.Þá er bátsgarmurinn orðinn græjaður svona eins vel og hægt er að græja hann.
Þeir félagar Gilli,Gauti og Siggi fóru allir saman upp í Skorradal og prófuðu nýju græjuna og að sjálfsögðu gátu þeir ekki annað en tekið með stangir.Eftir að hafa skoðað vatnið komust menn að því að þarna lifa nokkur risaskrýmsli af bleikjum að vera og ákváðu að reyna að ná í eitt stykki en eftir smá tíma varð ljóst að skrýmslin ætluðu ekki að taka agnið en menn fóru nokkuð sáttir heim engu að síður en þeir Gilli og Gauti fengu sitt hvorn tittinn en Siggi,ekki óvanur því að fá ekkert nema rassæri,fór heim með öngulinn í rassinum.Allir voru sammála því að nýja græjan virkaði frábærlega og var góð kaup fyrir félagið.Eg sjálfur get ekki beðið eftir að sjá þetta flotta tæki.
Blindi ritarinn.

Wednesday, August 03, 2005

Verslunarmannahelgin í Skorradal

Jæja,loksins fór ritarinn í veiðiferð og var það sú fyrsta síðan í apríl.Ég,Einar Lee,og Gilli fórum saman á gúmbát félagsins út á Skorradalsvatn á sunnudaginn og voru menn frekar þungir á sér sökum þynnku,en það er önnur saga.
Byrjuðum við veiðina um fimmleytið og var mjög fínt veður.Ekki lét fiskurinn á sér standa þó fleiri hefðu mátt koma upp í bátinn.Þessi dagur endaði með því að við vorum farnir að ala fiska á maðki en einungis fimm urriðar létu gabbast og kokgleyptu með græðgi í hjarta.En við vonum að hinir sem átu af önglinum hjá okkur séu saddir og ánægði og hafi stækkað því við komum og náum í ykkur síðar.
Blindi veiðimaðurinn ritaði.

Tuesday, July 19, 2005

Heiðarvatn 17.7.05

Heyrði frá þeim félögum Gilla og Gauta þar sem þeir fóru í sumarbústað á Flúðum um helgina.Upprunalega var ætlunin að fara ekkert að veiða en bakterían sagði til sín og þeir fóru ásamt börnum og buru í manngert vatn rétt hjá Flúðum að nafni Heiðarvatn að mér skilst.Ekki var um mikla veiði að ræða en samkvæmt áreiðanlegum heimildum kom þó einn fiskur á land þannig að þeir félagar fóru ekki með öngulinn í rassinum heim þann daginn.Eftir veiði dagsins heilsuðu þeir upp á bóndann sem á vatnið og fullyrti hann að þetta væri stærsti fiskurinn sem þarna hefði komið á land.Þetta var nefnilega sex punda kvikindi og tók hann á rækju af öllum hlutum.Þrátt fyrir fáa fiska var Gilli,en hann fékk þennan eina,auðvitað ánægður með daginn og láir honum það enginn eftir svona hvaldrátt.
Blind Fisher.

Thursday, July 14, 2005

Skorradalur 14.7.05

Nú að kvöldi þessa sólríka dags er Gilli einn að veiðum úti á bát á Skorradalsvatni.Þegar þetta er ritað hefur ekkert verið að fá á vatninu en Gilli gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana og ætlaði sér að sjá til fram eftir kvöldi.Hann er ekki mikið þekktur fyrir að fara heim tómhentur og vonum við að svo verði ekki heldur í kvöld.Hann er kominn með nokkrar myndir úr dalnum og ætlum við að bæta þeim hér inn á morgun eða hinn svona eftir því hvenær þær fást afhentar.
Ritað af Blind Fisher

Tuesday, July 12, 2005

Stubbarnir part 2 11.07.05

Heyrði frá strákunum í gærkvöldi svona við lok ferðarinnar og kom í ljós að Siggi hafði bæst í hópinn.Ég verð að segja að mig fór að klæja alvarlega í veiðifingurinn þegar ég heyrði að sex laxar voru komnir á land.Staðreyndin er nefnilega sú að ég hef aldrei veitt lax og ætli það geri mig ekki eina félagann sem hef aldrei veitt lax.
Allavega sex laxar á bilinu fimm til níu pund samkvæmt Gauta Halldórssyni,sérstökum heimildarmanni í þessarri ferð.Gilli fékk tvo,Gauti þrjá og Siggi fór ekki heim með öngulinn í rassinum og engann bruna heldur því hann fékk víst einn líka.Góð og skemmtileg ferð skildist mér og vonum að strákarnir hafi ekki gleymt myndavélinni svo við getum sýnt myndir af fengnum.
Ritað af Einari Lee